Sunday, October 28, 2007

Sumo 26-28 okt






Vorum upp í sumarbústað um helgina í margbreytilegu veðri, sól, rigning, logn, rok og snjór svo eitthvað sé nefnt.
Fórum í göngur og í sund, elduðum góðan mat og svo slappað vel af.
Alveg yndisleg helgi.

Monday, October 22, 2007

Berlin 19-23 okt 2007









Fór til Berlína um helgina í haustferð Hvíta Hússins, mjög skemmtilegt.
Gistum á Swissotel og fórum á laugardagskvöldinu í Admiralpalas sem er leikhúsið sem kennt er við Helga bjöss.
Allir voru búnir að klæða sig í grímubúning og skapaði það mikla stemmingu í hópnum.
Helgi tók á móti okkur og sýndi okkur leikhúsið og sagði okkur frá því.
Svo voru skemmtiatriði sem starfsfólk kom með og mjög góður matur.
Svo var farið í skoðunnarferð á sunnudag um Berlín.

Tuesday, October 16, 2007

Salon International 2007





Fór til London um helgina á hárgreiðslusýningu og var mjög gaman.
Fór á námskeið hjá Lee Stafford sem er einn helsti hárgreiðslumaður breta og svo á námskeið hjá Sasson.
Skemmtileg helgi og alltaf gaman að vera í London.