Sunday, August 21, 2011

10 km í Reykjavíkur Maraton


Við tókum þátt í Reykjavíkurmaraþoninu og hlupum 10 km fyrir Sólheima og Vala hljóp með okkur, frábært veður og kjöraðstæður.
Fórum í bæinn eftir hádegi og sáum Palla á Ingólfstorgi, svo á Brauðbæ og fengum okkur smurbrauð og alles. Hittum Snorra, Kristínu, Guggu, Auði og Ingólf og krakkana. Þau komu öll og kíktu á nýja heimilið okkar. Fórum um kvöldið niður í Hljómskálagarð og hlustuðum á Magnús og Jóhann þar hittum við Röggu og Guðbrand og komu þau aðeins við hjá okkur á leið heim.
Frábær dagur.










2 Comments:

Blogger Ragga said...

Takk fyrir samveruna :-) Það var svo gaman að hitta á ykkur og líka að fá að sjá íbúðina ykkar skemmtilegu á Urðarstígnum.

2:55 PM  
Blogger gunnarasg said...

Sömuleiðis. Takk fyrir það, alltaf gaman að hitta ykkur.
kv. Gunnar Ásg.

2:33 PM  

Post a Comment

<< Home